Aðalvalmynd

Klukkan

Könnun

Hver ertu?

Gagnasafn

Annað draugablogg:DRagnheiður Svava Karlsdóttir

Jæja krakkar mínir, loksins loksins fann ég eitthvað sniðugt að blogga um:) ef ég fæ einhver komment á þetta þá á ég pottþétt eftir að koma með annað fljótlega;) here goes...:

Andsetna líkkistan

Crumlin Road Prison í Belfast, Norður-Írlandi, er aðeins notaður sem túristastaður en fyrir mörgum árum var þetta staður til að aflífa fanga. Samkvæmt heimildum hoppaði einn ferðalangurinn í tóma kistu í gríni, ómeðvitaður um það að hann var greinilega að troðast á einhverjum sem var þar nú þegar. Gæti þetta verið andlit einhvers sem endaði líf sitt innan veggja Crumlin?

draugakista



Djöfull á mynd?

Joe Martinez segir að hann hafi verið háður eiturlyfjum þangað til ein mynd breytti lífi hans.
djöfull
Þessi mynd var tekin þegar tengdaforeldrar hans áttu brúðkaupsafmæli. Þegar Martinez og konan hans framkölluðu myndina voru þau viss um að þetta væri djöfull, illur andi eða jafnvel Satan sjálfur.
dj
Í dag segir Martinez að hann hafi myndina alltaf með sér og að hún hafi fengið hann til að hætta í dópinu.
Þessi skrítna vera kom ekki fram á neinum öðrum myndum sem teknar voru þetta kvöld og ljósmynasérfræðinar hafa ekki fundið neitt sem bendir til þess að hún sé fölsuð.
dj


Sheffield Park konan
Christopher Petty og bróðir hans voru í Sheffield Park á heitum Sussex degi að taka myndir. Þegar þeir framkölluðu filmuna sáu þeir svolítið sem þeir bjuggust alls ekki við.
sheffield
Í bakgrunninum á einni myndinni stendur, það sem virðist vera, skuggamynd af gamalli konu. Það eru engar styttur í garðinum (staðfest af öryggisvörðum garðsins) og Petty sagði fréttamanni BBC að engin hafi staðið fyrir aftan eða við hliðina á honum þegar myndin var tekin.
Stuttu eftir að BBC fjallaði um söguna hafði fjölskylda konu sem heitir Florence Bristow samband við þau. Þau vildu fá að vita hvort myndin væri ekta eða bara plat.
park
Fjölskyldan sagði þeim frá harmleik sem átti sér stað í Sheffield Park þann 4. ágúst 2001. Hin 87 ára gamla Florence Bristow fór í garðinn ásamt syni sínum og konunni hans.
Þau leigðu sér rafknúna smábíla og ætluðu að taka smá rúnt í kringum vatnið. Florence fékk hjartaáfall og datt á son sinn sem varð til þess að hann missti stjórn á bílnum sem endaði úti í vatninu. Konan hans John stakk sér útí vatnið til að bjarga Florence og þótt að allt hafi bent til þess að Florence hafði drukknað kom síðar í ljós að hún hafði dáið áður en hún lenti í vatninu.
Skiljanlega brá Bristow fjölskyldunni mjög þegar þau sáu draugamyndina hans Petty á BBC þar sem konan líktist Florence rosalega mikið, fötin eru meira að segja þau sömu.
park


Myndir frá öðrum tíma
Árið 1997 fann kona að nafni Rita Swift óframkallaða filmu heima hjá sér. Það var miði á henni sem á stóð "Tekið í bakgarðinum okkar sept.1969". Þegar Rita fór með filmuna í framköllun heppnuðust 19 af 20 myndum, sem kom öllum á óvart. Fyrstu 16 myndirnar voru ósköp venjulegar myndir af 5 ára dóttir Ritu, kettinum hennar, rólunni og aðrar venjulegar bakgarðsmyndir. En myndir 17, 18 og 19 voru aaaðeins öðruvísi. Eins og þið sjáið þá virðist sem þessar myndir (sem voru líka teknar í bakgarðinum árið 1969) sýna annan tíma, þegar Indjánar áttu landið.
16
mynd 16, ósköp venjuleg mynd


17

mynd 17

18

mynd 18

19

mynd 19

Ef þessar myndir eru ekta þá ættu þær að vera frá 17. eða 18. öld.

 

Gestur í bakgarðinum

Þessar myndir voru teknar af gamalli konu í Mt. Juliet, Tennessee. Hún sagði ættingjum sínum að það væru draugar í bakgarðinum sem kæmu úr skóginum, löbbuðu um og hurfu svo. Þegar enginn trúði henni þá ákvað kerlingin að taka bara myndir næst þegar þeir kæmu.

garður

garður

Samkvæmt heimildum býr konan ein, er yfir áttrætt og kemst leiða sinna með göngustaf. Þar af leiðandi hafði hún enga löngun, hvað þá ástæðu, til að feika þessar myndir.

 

Draugaárás

Í rannsókn sem virtist ætla að vera ósköp venjuleg fóru tveir draugarannsóknarmenn uppá háaloft. Þeir ætluðu að finna út hvað olli óhljóðunum sem fjölskyldan kvartaði undan. Þegar þeir voru komnir uppá háaloftið öskraði annar maðurinn og hinn tók þessa óhugnanlegu mynd af því sem þeir segja að sé af rannsóknarmanni sem varð fyrir draugaárás.

árás

Eins og þið sjáið er snúra vafin um hálsinn á manninum og verið að kyrkja hann. Maðurinn slapp og komst af háaloftinu, ennþá með snúruna vafna um hálsinn.
Fjölskyldan hafði flutt úr húsinu kvöldið áður vegna illra anda og það er ekki erfitt að trúa því að þessar myndir hafi hjálpað þeim að taka þá ákvörðun.

 

jæja, satt eða ekki? that´s up to you;) vonandi höfðuð þið jafn gaman að þessu og ég:D

þar til næst...

over and out

Ragga:D

bloggi bloggRagnheiður Svava Karlsdóttir

jæja þá er víst kominn smá tími til að blogga:) smá tími liðinn síðan síðast og fullt búið að breytast!
núna er mín bara hætt á leikskólanum sem var alveg hrikalega sorglegt. verð að viðurkenna að ég felldi jafnvel 2-3 tár þegar kom að því að kveðja.
ég ákvað að taka mér vikufrí áður en ég byrjaði í ELKO sem var alveg ótrúlega næs, gat gert allt sem ég þurfti að gera, fara til læknis, sækja skattkortið mitt og svona..án þess að þurfa að "skreppa" úr vinnunni:D svo skemmdi ekki fyrir að ég fékk að sofa út:D svo byrjuðu lætin í elko, byrjaði á þvi að vera ein á kassanum í tvo daga sem var ekkert svo spennandi:/ en þetta er búið að vera frábært eftir að við byrjuðum allar að mæta:) alltaf stuð í vinnunni;)
svo er bara djammað hverja einustu helgi, össss verð að fara að slaka á! samt búið að vera alveg svakalega gaman alltaf:) fer að skella myndum inná myspace um leið og ég finn myndasnúruna mína hehe..hún er ennþá heima hjá pabba..held ég:) en þetta kemur allt, verðum bara að bíða róleg...
ég veit ekki alveg hvað ég á að segja meira...er svo léleg í þessu bloggsystemi:/ en ég skal reyna að vera duglegri í þessu:) en þá verður fólk líka að lesa:D
ætla að reyna að koma með svona "fróðleiks"blogg næst...þarf bara að finna eitthvað spennó fyrst:)
over and out
Ragga:D

jæja er þetta ekki komið gott?:)Ragnheiður Svava Karlsdóttir

ég er búin að fá nokkrar kvartanir yfir bloggleysi þannig að ég ákvað að skella loksins inn einu núna:) þetta verður samt bara svona klassískt nöldur/segja frá blogg en ekki einhver fræðsla eins og hefur verið;)

aaaallavegana þá er margt búið að drífa á mína daga, en samt ekki einhvern veginn. Er búin að vera að vinna og vinna, bæði í elko og leikskólanum og auðvitað djamma inná milli;) náði mér svo í eitthvað leiðindakvef flensu á síðasta djammi sem er samt að leka úr mér núna sem betur fer:)

síðustu helgi þá var ég að vinna (as usual) og þegar ég LOKSINS komst út, sem var ekki fyrr en um sjö hálf átta leitið, þá átti ég eftir að bruna að sækja Dagný, fara heim í sturtu, gera mig sæta OG redda fari í vinnuparty. Þetta var aðeins of mikið álag fyrir mig þannig að ég var svona við það að fá nervous breakdown en þetta reddaðist allt fyrir rest;) loksins þegar ég og Dagný mættum í partýið þá tókum við eftir því að við vorum bara með þeim fyrstu en samt vorum við aðeins komnar fram yfir fashonably late;) hehehe

þetta var samt SVOOOO gaman, ég hreinlega elska fólkið sem ég vinn með. Allir í rosastuði og kræsingar útum allt hús:D  svo skiptumst við Bjarni á að hella skotum í fólkið þannig að það urðu flestir svona aðeins of ölvaðir en það er bara stemmning..í hófi allavegana;) (myndir inni á www.myspace.com/raggas :P)
svo var AUÐVITAÐ kíkt niðrí bæ og hvert annað en á Hressó;) ég og dagný fórum bara einar aldrei þessu vant, erum venjulega umkringdar vinum og vandamönnum en ákváðum að fara bara 2 í þetta skiptið, og jeddúddajollí hvað það var geggjað. Við svoleiðis dönsuðum af okkur bossalinginn össöss:) svo var farið á habibi og heim með leigubíl sem kostaði nú skildinginn skal ég segja ykkur. svona er að eiga heima uppí sveit;)

svo var bara þynnkudagurinn daginn eftir, lá uppí rúmi, át snakk og horfði á ghost wisperer frá svona tvö til ellefu sem var nú ekkert leiðinlegt:) ný vinnuvika tók við með smá slettu af veikindum, en ég mæti galvösk til vinnu á morgun og ríf upp stemmninguna;) 

ohhh svo er matarboð heima hjá Bergdísi á morgun og ég hlakka svo til:) ætla reyndar að mæta á bíl en það er aukaatriði:)

maður er svo að telja niður þangað til hin alræmda benidormferð, með hinni alræmdu Dagný, skellur á, 36 DAGAR;)
benidorm
 get varla beðið en maður verður að harka þetta af sér. 20 dagar þangað til ég fer í sumarfrí, langar helst bara að fara að sofa og vakna í sumarfríi, en svona er víst lífið:) ekkert grín að vera svín og vera étinn á jólunum.

jæja, hef ekkert meira að segja, vonandi nennti einhver að lesa þetta:) vinna vinna um helgina og VONANDI dregur ákveðin stúlka mig með sér á djammið *smartís* :P bíð spennt eftir því að heyra frá þér!!;) 
þangað til næst, over and out
Ragga:D

alveg að koma nýtt blogg:)Ragnheiður Svava Karlsdóttir

jæja vildi bara koma því á framfæri að ég fer alveg bráðum að henda inn nýju bloggi:P er að reyna að finna eitthvað sniðugt að blogga um OG þarf að kaupa nýtt hleðslutæki fyrir tölvuna af því að hitt dó:(

róa sig marta:P

later
Ragga

10 skrítnustu sjúkdómarnirRagnheiður Svava Karlsdóttir

 Jæja ég ákvað að skella inn öðru bloggi svo að Marta rotni ekki í vinnunni;) gjöriði svo vel:


1. Fílaveikin

Lymphatic filariasis, eða fílaveikin, er best þekkt af dramatískum myndum af ótrúlega stórum og bólgnum útlimum (höndum, fótum). Það sem veldur þessari veiki eru ormar (Wuchereria bancrofti, Brugia malayi, and B. timori) sem berast með moskító flugum. Fílaveikin hrjáir 120 milljón manns um allan heim og 40 milljón af þeim eru alvarlega veikir. Þegar smituð, kvenkyns moskító fluga bítur mann getur hún borið orminn microfilariae í blóðið. Ormurinn fjölgar sér og flæðir um blóðið þar sem þeir geta lifað í mörg ár. Oftast koma einkenni sjúkdómsins ekki í ljós fyrr en ári eftir smit. Eftir að snýkjudýrin eru búin að koma sér fyrir í blóðinu geta þau stöðvað blóðflæðið sem gerir það að verkum að vökvi safnast saman í kring. Algengustu einkennin eru ótrúlega stækkaðar hendur, fætur, kynfæri og brjóst.
fílafíla


2. Progeria - 80 ára gömul börn

Progeria er sjúkdómur sem orsakast af einum litlum galla í gena mengi barns og hefur hræðileg áhrif á líf þess. Að meðaltali deyja börn með þennan sjúkdóm fyrir 13 ára aldur. Þau sjá líkama sinn spóla áfram og  þróa með sér ótrúleg líkamleg einkenni, sem er yfirleitt að missa hárið, hjartasjúkdómar, beinþynningar og gigt.  Progeria er mjög sjaldgæfur sjúkdómur en það eru aðeins 48 manns í öllum heiminum sem þjást af honum. Samt sem áður er ein fjölskylda sem á 5 börn með þennan sjúkdóm.
progeria


3. Varúlfa sjúkdómurinn

Þegar hin tveggja ára Abys DeJesus byrjaði að vaxa dökka hárbletti í andlitinu sögðu læknarnir að hún væri með Varúlfa sjúkdóminn (Human Werewolf Syndrome). Sjúkdómurinn er kallaður þetta af því að þeir sem þjást af honum líta út eins og varúlfar nema eru ekki með beittar tennur og klær. Í Mexíkó er stór fjölskylda mönnum sem eru þaktir hárum í andlitinu og efri hluta líkamans. Þeim var meira að segja boðið hlutverk í x-files en afþökkuðu það.
varúlfar


4. Blá húð

Stór fjölskylda, einfaldlega þekkt sem "bláa fólkið" bjó í hæðunum í kringum Troublesome Creek í Kentucky til 1906. Flest af þeim lifðu til 80 ára aldurs, með engan alvarlegan sjúkdóm, bara bláa húð. Einkennið barst áfram frá kynslóð til kynslóð og fólk sem hefur þetta er með bláa eða fjólubláa húð.
bláa fólkið


5. Pica - þörfin fyrir að borða mat sem er ekki matur

Fólk sem greinist með Pica sjúkdóminn hefur sérstaka þörf fyrir að borða eitthvað sem telst ekki matur t.d. mold, pappír, lím og leir. Sérfræðingar hafa hvorki fundið neina ástæðu fyrir þessu né lækningu.


6. Vampíru sjúkdómurinn

Það er fólk þarna úti sem leggur margt á sig til að forðast sólina. Ef þeir fara út í sólina verður húðin á þeim öll útí blöðrum og sumir þeirra verða allir útí sársaukafullum blöðrum UM LEIÐ og sólin lendir á húðinni. Þetta eru ekki alvöru vamprírur (duh) , þau drekka ekki blóð og sofa ekki í líkkistum, en þau eru með þessi vampíru einkenni.


7. Lísa í Undralandi heilkennið

Alice in Wonderland syndrome (AIWS) er taugasjúkdómur sem hefur áhrif á sjónskyn. Sjúklingarnir sjá manneskjur, líkamspart af manni, dýr og aðra hluti, miklu minni en þeir í rauninni eru. Til dæmis, fjölskyldu hundurinn getur virst vera á stærð við mús eða venjulegur bíll virðist hafa minnkað verulega. Þessi sjúkdómur hefur aðeins áhrif á sjónskynið, augun sjálf og sjónin eru í lagi, það er bara  heilinn sem vinnur vitlaust úr upplýsingunum.


8. Blaschko línur

Blaschko línur eru MJÖG sjaldgæfar og óútskýranlegar sem kom fyrst fram árið 1901 af þýskum manni sem heitir Alfred Blaschko. Það er ekki verið að ræða um neinn ákveðin sjúkdóm eða nein fyrirsjáanleg einkenni sjúkdóms, línurnar koma bara fram í formum. Þær koma næstum því eins fram á öllum sjúklingum, V laga á bakinu og S laga yfir bringuna, magann og síðurnar.
línur


9. Gangandi lík heilkennið

Þetta er sjúkdómur þunglyndis og sjálfsmorðsíhugana og yfirleitt segja sjúklingarnir að þau hafi misst allt, allar eigur, líkamspart og stundum halda þau því fram að þau séu dáin og séu gangni lík. Þetta gengur yfirleitt svo langt að þau halda því fram að þau finni lyktina af rotnandi holdi sínu og segjast finna fyrir ormum skríðandi inní sér.


10. Jumping frenchman disorder - furðuleg viðbrögð

Aðaleinkennið er að manneskjunni er óvenjulega brugðið við hljóði eða sjón sem þau bjuggust ekki við. Hún kippist ekki bara við þegar einhver læðist að henni og segir BÖÖÖÖÖ. Sjúklingar með þennan sjúkdóm veifa höndunum, öskra og endurtaka orð aftur og aftur.

Jæja, vonandi höfðuð þið gaman að þessu:)

síðar
Ragga

7 ótrúlegustu stökkbreytingar í heimiRagnheiður Svava Karlsdóttir

Jæja enn og aftur fann ég eitthvað athyglisvert blogg sem ég ákvað að þýða;) enjoy:)

1. Froskalegt barn


Árið 2006 fæddist þetta furðulega útlýtandi barn í Charikot (veit ekkert hvar það er).
Þetta hálslausa barn, með höfuðið næstum sokkið ofan í búkinn og ótrúlega stóru augu sem bókstaflega eru að poppa úr augntotunum, fæddist þeim Nir Bahadur Karki og Suntali Karki á Gaurishnkar spítalanum í Charikot.


froskabarn


Þetta furðulega barn dó samt sem áður aðeins hálftíma eftir að það fæddist samkvæmt móðurinni. Það var tekið á spítalann eftir að það dó. Frétt um að svona barn hefði fæðst á spítalanum breiddist út eins og eldur í sinu og hundruðir manna söfnuðust saman fyrir utan spítalann. Lögreglan þurfti að mæta á staðinn til að hafa hemil á fólkinu.
Barnið var 2 kg og fæddist eftir eðlilega 9 mánaða meðgöngu. Suntali, sem átti fyrir 2 heilbrigðar dætur, átti ekki við nein veikindi að stríða
meðan á meðgöngunni stóð. Nir Bahadur, faðirinn, sá ekki eftir dauða barnsins "ég er bara feginn að það er allt í lagi með konuna mína" sagði hann.




2. Maðurinn með 35 cm rófuna

rófukall

Chandre Oram hefur verið settur í "guðalíki" í heimabæ sínum Alipurduar vegna 35 cm rófunnar sinnar. Hann segir að guðinn Hanuman hafi blessað hann. "Ég er fæddur á Ram Navami (afmælisdegi guðsins Ram). Fólk hefur mikla trú á mér, það læknast af ýmsum kvillum þegar það snertir rófuna mína. Ég trúi því að ég geti látið gott af mér leiða fyrir fólk sem kemur til mín" segir maðurinn en þúsundir manna standa í röð hjá honum á hverjum degi til að leita blessunar.
Hins vegar, vegna rófunnar, hefur Chandre þótt erfitt að finna sér eiginkonu. "Næstum 20 konur hafa hafnað bónorði frá mér. Þær sjá mig og segja já við að hittast en um leið og ég sný mér við þá sjá þær rófuna og fara. En ég hef ákveðið að ég ætla að giftast þeirri konu sem tekur bæði mig og rófuna í sátt annars verð ég bara piparsveinn." sagði hann.
Fjölskylda Chandre er stolt af rófunni hans og hafa hafnað tilboðum frá læknum um að fjarlægja hana. "Hann mun ekki lifa af án rófunnar. Hún er orðin partur af honum sjálfum og hans tilveru." sagði Rekha systir hans. Læknar segja að svona rófur séu mjög sjaldgæfar.
Hérna er myndband af honum: http://youtube.com/watch?v=QWHW-jxxS1U&feature=related



3. Eineygða barnið

barn

Árið 2006 fæddist þetta eineygða barn í Indlandi. Starfsfólkið á sjúkrahúsinu sem aðstoðaði við að taka á móti barninu halda að barnið sé svona vegna tilraunalyfs fyrir krabbamein. Hún fæddist með eitt auga á miðju enninu og ekkert nef. Með svona rosalega líkamsgalla er ótrúlegt að barnið hafi lifað af jafnvel nokkrar mínútur eftir að
það fæddist. Það dó nokkrum dögum seinna.




4. Stærsta hendi í heimi

stór

Lui Hua þjáist af sjaldgæfum sjúkdómi sem kallast macrodactyly. Þegar hann var lagður inn á spítala í Shanghai í júlí 2007 var þumallinn mældur 28 cm og vísifingurinn næstum 30 cm. Þann 20.júlí fór hann í 7 tíma aðgerð til að minnka stærðina á fingrunum hans. Læknarnir
fjarlægðu 5 kg af skinni og beinum í ferlinu. Það er búið að plana aðra aðgerð.



5. Fætur sem snúa öfugt

fætur


Wang Fang, 27 ára frá Chongqing í Kína, fæddist með öfuga fætur. Hún hefur lært að lifa með þessu án vandræða og hafnaði nýlega örorkubætum og því að vera skráð sem öryrki. "Ég get hlaupið hraðar en flestir vinir mínir og vinn sem gengilbeina á veitingarstað fjölskyldunnar. Það er engin ástæða til að stimpla mig sem öryrkja"



6. Barn með 3 handleggi

þrjár hendur

Þetta 2ja mánaða barn fæddist með þriðja handlegginn árið 2006. Það heitir Liu Junjie og er frá Anhui Province í Kína. Læknarnir fjarlægðu þennan mjööög sjaldgæfa og vel þróaða handlegg en barnið þurfti langa endurhæfingu til þess að læra að hreyfa hina handleggina. "Við erum að vonast til að geta skipst á upplýsingum við aðra lækna sem
hafa tekist á við svona tilfelli, hvar sem er í heiminum." sagði yfirlæknir spítalans. "Þetta er svo sjaldgæft og við höfum engar upplýsingar til að vinna úr."



7. Geirvarta á fæti

geirvarta

Í einhverju blaði stendur þetta: "22ja ára kona sótti eftir læknisaðstoð vegna vel þróaðrar geirvörtu umkringda hárum, á ilinni. Eftir nánari rannsókn fundust hárrætur og fitukirtlar. Eftir okkar bestu þekkingu er þetta fyrsta tilfellið um "brjóstamyndun" á fæti"
Jahá!!



Jæja ég vil bara þakka þeim fyrir sem nenntu að lesa þetta;) svo vil ég fá FULLT af kommentum af því að annars fer ég bara að hætta að nenna þessu;) og ég er með gestabók líka:P

síðar
Ragga

Ragnheiður Svava Karlsdóttir

Vil taka það fram að þetta blogg er líka stolið:) fannst hitt svo gaman (ég veit ég er nörd) að ég ákvað bara að gera þetta aftur..so here goes:


"Brúna daman í  Raynham Hall"
("The Brown Lady of Raynham Hall")

brúna daman

Þessi mynd var tekin árið 1936 í Raynham Hall í Norfolk, Englandi. Þessi mynd af "The Brown Lady"  er umdeilanlega frægasta draugaljósmynd sem tekin hefur verið. Draugurinn er talinn vera Lafði Dorothy Townshend, eiginkona Charles Townshend. Þau voru íbúar Raynham Hall, Norfolk, Englandi, snemma á sautjándu öld. Það var orðrómur um að Dorothy, áður en hún giftist Charles, hefði verið viðhald Lord Wharton. Charles grunaði Dorothy um framhjáhald. Þótt að samkvæmt löglegum skýrslum hafi hún verið jörðuð árið 1726, þá er grunur um að það hafi verið plat og að Charles hafi lokað hana inní í einhverju herbergi í húsinu þangað til hún dó nokkrum árum seinna.


Uppáhaldsstóllinn hans
(His favorite chair)

stóll

Lord Chombermere elskaði stólinn sinn. Hann dó eftir að hafa orðið undir hestvagni árið 1891. Stuttu seinna stillti ljósmyndari myndavéllinni sinni upp í 1 klukkutíma inni á bókasafninu á setri Lord Chombermere, á meðan var allt starfsfólkið (þernan, kokkurinn o.s.frv.) í jarðarförinni hans. Þegar filman var framkölluð kom þessi óhugnanlega mynd fram sem virðist vera af mannshaus og hendi, sitjandi í stólnum. Margir af staffinu sögðu að myndin væri mjög lík Lordinum og að þetta væri uppáhaldsstóllinn hans á bókasafninu.

Endurkoma Freddy Jackson
(Freddy Jackson´s comeback)

freddy jackson

Freddy Jackson var vélvirki í Konunglega flughernum í fyrri heimstyrjöldinni. Freddy Jackson dó árið 1919 þegar flugvél brotlenti á honum. Tveimur dögum seinna, þegar sveitin hans safnaðist saman fyrir hópmyndatöku, poppaði Freddy Jackson upp, glottandi bakvið eyra annars hermanns. Það greinilega gleymdist að segja Freddy Jackson að hann væri dauður. Meðlimir hersveitarinnar þekktu myndina af honum greinilega.


Stiga-draugurinn í The Nation Museum, Greenwich, England
(Stair Case Ghost of National Museum, Greenwich, England)

stigi


Séra Ralph Hardy, prestur á eftirlaunum frá White Rock, tók þessa frægu mynd árið 1966. Hann ætlaði sér aðeins að taka mynd af þessum fallega stiga í "Húsi drottningarinnar" partinum í The National Museum. Hins vegar, þegar myndin var framkölluð kom fram þessi vera sem virðist vera að klifra upp stigann, haldandi í handriðið með báðum höndum. Sérfræðingar, meðal annars frá Kodak, sem rannsökuðu upprunalegu filmuna komust að þeirri niðurstöðu að það hefði ekki verið átt við hana. Það hefur verið sagt að óútskýranlegar verur hafi sést á þessum stað og að það fótgangur hafi heyrst sem ekki hafi verið hægt að útskýra.


Fjárans aftursætis bílstjórar
(Darn backseat drivers)

bíll


Árið 1959 fór Mable Chinnery í kirkjugarðinn að heimsækja gröf móður sinnar, eins og ástríkar dætur gera. Hún tók nokkrar myndir af grafreitnum en beindi svo myndavélinni að manninum sínum, sem sat einn í bílnum. Myndin var framkölluð og þetta kom í ljós: einhver með gleraugu sem situr í aftursætinu á bílnum, mjög augljóst. Frú Chinnery sór að þessi "aftursætisbílstjóri" væri enginn annar en mamma hennar, sem átti gröfina sem hún stóð hjá þegar hún tók myndina! Hmmm...lifandi eiginmaður og dauð tengdamamma sem horfir yfir öxlina á honum...það er brandari hérna, ég bara veit það!



Hvað viltu á legsteininn þinn?
(what do you want on you tombstone?)

legsteinn

Árið 1996 tók Ike Clanton þessa mynd af vini sínum, klæddur í kúrekafötum, í miðjum Tombstone Boothill Graveyard. Þeir sverja báðir að þeir hafi ekki komið á auga á neinn þegar myndin var tekin. Seinnameir fór þeir á sama stað og reyndu að sviðsetja myndina, þar sem þeir létu einhvern standa þar sem "dularfulli maðurinn" birtist á myndinni. Ike Clanton segir að það sé ómögulegt að taka þannig mynd án þess að það sjáist í fótleggi aftari manneskjunnar. Clanton sagði að hann hafi ekki verið viss um að það væri draugagangur í Tombstone, en þessi mynd hafi fengið hann til að trúa.


Come on baby, light my fire!
(Fannst þessi fyrirsögn svo mikil snilld að ég gat ekki fengið mig til að þýða hana yfir á íslensku;))

eldur

eldur


19. nóvember 1995 var Wem Town Hall in Shropshire, Englandi hrikalegum eldsvoða að bráð og brann til kaldra kola. Meðan slökkviliðsmenn voru að reyna að slökkva eldinn stóð bæjarbúi, Tony O´Rahilly, hinum meginn við götuna og tók myndir. Þar sést, mjög greinilega, eitthvað sem virðist vera ung stúlka. Sérfræðingar hafa komist að þeirri niðurstöðu þessar myndir séu 100% ekta.
Árið 1677 varð rosalegur eldsvoði sem brenndi öll timburhús Wem Town Hall til kaldra kola. Eldurinn er sagður hafa átt upptök sín hjá ungri 14 ára stúlku sem hét Jane Churm. Hún lést í eldinum ásamt fjölmörgum. Sagt er að draugur Jane gangi aftur á svæðinu.


Draugur Bachelor´s Grove, Chicago
(Ghost of Bachelor´s Grove, Chicago)

draugur


Þessi mynd var tekin, við rannsókn á Bachelor´s Grove kirkjugarðinum, af Félagi Draugarannsóknarmanna (Ghost Research Society(GRS)). 10. ágúst 1991 voru nokkrir meðlimir félagsins í kirkjugarðinum nálægt litlum yfirgefnum grafreiti. Bachelor´s Grove er þekktur fyrir að vera andsettnasti kirkjugarðurinn í Bandaríkjunum og hafa yfir 100 mismunandi skýrslur verið gefnar af skrítum fyrirbærum sem hafa sést. Þegar filman var framkölluð kom þessi mynd í ljós. Þetta virðist vera einmana, ung kona klædd í hvítu, sitjandi á legsteini. Sumir líkamspartar eru gagnsæir og stíll kjólsins er gamaldags.



And the sea gave up the dead wich were in it..
(vissi heldur ekki hvernig ég átti að þýða þetta)

sjómenn



Árið 1924 dóu 2 sjómenn af skipinu S.S Watertown, þeir James Courtney og Micheal Meehan, af slysförum. Þeir önduðu að sér gasgufum meðan þeir voru að þrífa tank. Þegar sjómenn Watertown voru á leið til Panama, "jörðuðu" þeir Courtney og Meehan í sjónum við strendur Mexico. Það var 4.desember. Þann 5.desember varð fyrsti maðurinn var við andlit þeirra í sjónum, við skipið. Næstu daga urðu allir skipverjarnir varir við þetta, andlitin birtust og hurfu, meira að segja skipstjórinn. Þegar hann sagði yfirmönnum sínum þetta í höfn New Orleans var stungið uppá því að hann myndi reyna að taka mynd af andlitunum. Keith Tracy, skipstjórinn, keypti sér myndavél og skipið lagði í hann aftur. Fljótlega birtust andlitin aftur, Tracy tók sex myndir og lokaði myndavélina í öryggisskáp skipsins. Myndavélin var ekki hreyfð fyrr en farið var með hana í framköllun í New York. Fimm af myndunum sýndu ekkert óvenjulegt, en sú sjötta sýndi greinilega það sem virtist vera andlit sjómannanna tveggja. Engar sannanir um fölsun hafa komið fram. Andlit mannanna hættu að birtast eftir að nýir skipverjar voru fengnir á skipið.


Newby kirkju munkurinn
(The Newby church monk)

munkur


Séra K.F Lord tók þessa mynd af altarinu í kirkjunni sinni í North Yorkshire, Englandi, og þetta er það sem kom út. Það er sagt að myndin og filman hafi verið grandskoðuð af sérfræðingum sem geta engan vegin séð að þetta átt hafi verið við þetta. Reiknað er með að veran sé 2,7 m há og ekki hafa fundist neinar heimildir fyrir því að svona fáránlega stór munkur hafi nokkurn tíma verið í Newby kirkjunni. Ljósið að stríða okkur eða hvað?


Draugabarn í kirkjugarði
(ghost child at cemetery)

draugabarn


Kona sem heitir frú Andrews var að heimsækja gröf dóttur, Jocey, sinnar sem dó 17 ára. gömul. Hún sá ekkert óvenjulegt þegar hún tók þessa mynd af gröfinni. Þegar filman var framkölluð varð hún mjög hissa að sjá mynd af því sem virðist vera lítið barn sitjandi á gröf dóttur hennar. Draugabarnið virðist vita af frú Andrews þar sem það horfir beint í myndavélina. Er mögulegt að filman hafi bara óvart verið notuð tvisvar? Frú Andrews segir að engin börn hafi verið nálægt þegar hún tók myndina og að hún þekkir þetta barn alls ekki. Þetta er enginn sem hún hefur tekið mynd af áður. Hún tók það fram að hún trúir því ekki að þetta sé draugur dóttur hennar.



Draugur London´s St. Botolph´s kirkju
(London's St. Botolph's Chruch Ghost)

draugur

Árið 1982 tók ljósmyndari, sem heitir Chris Brackley, ljósmynd af innhúshönnun London´s St. Botolph´s kirkjunni en hann bjóst ekki við því sem hann myndi sjá á filmunni. Á efri kirkjunnar, sést í uppi í hægra horni myndarinnar, er eitthvað sem virðist vera gagnsæ kona. Brackley segir að eftir því sem hann best veit voru aðeins þrjár aðrar manneskjur í kirkjunni og enginn af þeim uppi á efri hæðinni.




Kirkjudraugur
(Church Minister Ghost)

kirkjudraugur

Samkvæmt heimildum Brad Steiger´s Real Ghosts, þar sem þessi mynd fannst, var aðeins einn annar ljósmyndari í kirkjunni og hann stóð við hliðina á þeim sem tók þessa mynd. Hvorugur þeirra man eftir því að hafa séð draug eða einhverja aðra holdi klædda persónu standa þarna sem gæti útskýrt þessa mynd. Af því að veran er öll í svörtu þá hafa verið ágiskanir um að þetta hafi verið prestur kirkjunnar.



Afadraugur standandi fyrir aftan ömmu
(Grandfather Ghost Standing Behind Grandmother)

afadraugur

"Konan á lituðu myndinni er amma mín" segir hún. "Hún bjó ein þangað til hún varð 94 ára, þá byrjaði aldurinn að segja til sín og hún var flutt á heimili fyrir aldraða. Í lok fyrstu viku hennar þar, var lautarferð fyrir íbúana og fjölskyldur þeirra. Mamma mín og systir mættu. Mamma mín tók tvær myndir þennan dag, þessi er ein af þeim. Hún var tekin sunnudaginn 17.ágúst 1997, og við höldum að þetta sé afi okkar sem dó sunnudaginn 14. ágúst 1984. Við tókum ekki eftir manninum fyrr en á jóladag árið 2000 (amma var þá dáin), þegar við vorum að fara í gegnum fjölskyldu myndir heima hjá foreldrum okkar. Systir mín hafði sagt að henni fyndist þetta mjög góð mynd af ömmu og hafði meira að segja tekið afrit af henni fyrir mömmu, en enginn hafði tekið eftir manninum fyrir aftan hana í næstum 3 ár. Þegar ég kom heim til foreldra minni á jóladag rétti systir mín mér myndina og sagði: "Hverjum finnst þér þessi maður, sem stendur fyrir aftan ömmu, líkjast?" Það tók mig nokkrar sekúndur að fatta það. Ég varð algjörlega orðlaus. Svarthvítu myndirnar sýna að þetta líkist honum mjög mikið."



Draugur að fara yfir lestarteina í San Antonio, Texas.
(Railroad Crossing Ghost in San Antonio, Texas)

lestarteinar

Skrítinn saga gengur um af lestarteinunum í San Antonio, Texas. Á gatnamótum götunnar og lestarteinanna er sagt að hafi orðið hræðilegt slys sem dró fjölmörg skólabörn til bana. Það er sagt að draugar þeirra séu ennþá á svæðinu og að þeir ýti bílum yfir teinana, jafnvel þótt þetta sé í brekku. Dóttir Debi Chesney og nokkrir vinir hennar fóru að teinunum til að sannreyna þessa sögu, og hún tók nokkrar myndir. Þessi ótútskýranlega, gagnsæja vera kom fram á einni af myndunum.

Ef þið höfðuð gaman að þessu þá er bara endilega að kommenta;) aldrei að vita nema ég geri þetta aftur..fer allt eftir viðbrögðum frá ykkur;)

síðar
Ragga

5 hræðilegustu pöddur í heiminum!!Ragnheiður Svava Karlsdóttir

Ég vil taka það fram að þetta er stolið af öðru bloggi, ég þýddi þetta bara yfir á íslensku af því að ég hafði nákvæmlega ekkert annað að gera:D hehe! Mér fannst þetta bara svo athyglisvert að ég ákvað að þýða þetta beint yfir á íslensku á nýju bloggsíðunni minni:) vinsamlegast ekki kæra mig fyrir þetta:P


Það eru 10,000,000,000,000,000,000 skordýr á jörðinni. Í alvörunni, þetta er rétt tala.
Fyrir hvert og eitt okkar eru um 1.5 billjón pöddur.
En sumar af þeim eru svo hryllilegar að aðeins
ein er nóg.  Hérna eru 5 pöddur sem þú vilt forðast eins og þú getur!



Japanska risa vespan (
Japanese Giant Hornet)

japanska risavespan

Frá: Japan, auðvitað

Af hverju þarftu að óttast hana?

Þessar vespur eru jafnstórar og þumalputtinn á þér og sprauta á þig holdætandi eitri. Og ekki nóg með það heldur sprauta þær því í augun á þér. Og ég er ekki búin! Eitrið gefur frá sér ilm sem kallar á allar hina risavespurnar í búinu svo þær koma og stinga þig þangað til líf þitt fjarar út.
Ef þú heldur að það sé ekkert mál að hlaupa bara í burtu þegar þær nálgast þá skjátlast þér þar sem þessi kvikindi geta flogið 75 km á dag. Það væri nú gaman að geta sagt eitthvað ánægjulegt eins og: "ekki hafa áhyggjur, þær búa bara ótrúlega háum fjöllum þar sem enginn vill búa" en þá væri ég að ljúga að þér. Þær búa all over the place, meira að segja rétt fyrir utan Tokyo

40 manns deyja af þessum völdum á hverju ári.

Ennþá hræðilegra:
Hérna sjáiði hvað japanska risavespan gerir við önnur skordýr (og myndi örugglega gera við okkur ef við værum nógu lítil). Fullorðin vespa flýgur marga km til að finna eitthvað mjúkt ógeð til að gefa börnunum sínum. Oftast finnur það mat í , segjum bara, býflugnabúi með helling af býflugum.
Hvað gerir hún? Nú hún sprautar þessu eitri sínu inní búið og kallar á liðsauka, sem yfirleitt samanstendur af 30 vespum eða svo. Svo ráðast þær saman á búið eins og plága frá djöflinum. Bú með 30,000 býflugum á ekki séns þegar 30 risavespur mæta á svæðið.

japönsk risavespa



Byssukúlu maurinn (Bullet Ant)

byssumaur

Frá: Regnskógum frá Niguragua til Paraguay

Af hverju þarftu að óttast hann?
Hann er 2,5 cm að lengd, býr í trjám og geta þess vegna dottið á þig til að hræða þig frá búinu sem þú vissir ekki að væri þarna - af því að það er uppi í einhverju tré!! Áður en maurinn dettur á þig þá skrækir hann, já hann skrækir. Þessi maur skrækir!! Hann er kallaður Byssukúlumaur (Bullet Ant) af því að bitin frá honum jafnast á við að vera skotinn með byssukúlu.
Og ég ítreka að þeir SKRÆKJA á þig!

byssumaur

Ennþá hræðilegra:
Ert þú manneskja sem heldur að hún sé hörð? Höndli allan sársauka? Harður gæi?
Sumir ættbálkar í regnskógunum,  þar sem þessir maurar finnast, nota maurana í manndómspróf. Þið vitið hvað ég er að tala um, hjá okkur er það stór veisla, ættingjarnir gefa þér dýrar gjafir/pening, allir elska þig og eru rosalega stoltir af þér. Nákvæmlega. Hjá þeim búa þeir til sérstakar ermar úr laufblöðum með hundruðir af þessum maurum vafna inní. Þeir setja ermarnar á sig og eru samstundir stungnir eins og enginn sé morgundagurinn! Takmarkið er að vera með þessar ermar og vera stunginn í 10 mínútur, eftir það eru handleggirnir orðnir stífir og sárskaukinn nánast óbærilegur. Og til þess að falla ekki á þessu prófi þarftu að gera þetta fokking 20 sinnum!!!


Afrísk Býfluga (Africanized Honey Bee)


býflugur

Frá:  Suður- og Mið ameríku

Af hverju þarftu að óttast hana?
Veistu hvernig þú þekkir eina slíka? Það er ekki hægt. Það er engin leið að sjá muninn á afrískum býflugum og okkar venjulegu evrópsku býflugum. Alls engin.
En þú getur hinsvegar auðveldlega séð munin með hegðuninni á þeim. Venjulegar býflugur gefa þér svona um það bið 9 sekúndur nálægt búinu áður en þær ákveða að þú sért ógn og ráðast á þig. Svo það er nokkuð auðvelt að labba framhjá þeim án þess að hlaupa öskrandi í burtu. Og ef þær byrja að elta þig þá gefast þær upp eftir svona 90 metra.

býflugur

Afríska afbrigðið aftur á móti gefur þér svona um hálfa sekúndu nálægt búinu áður en þær ákveða að rústa þér algjörlega og tæma allt búið - tíu jafnvel hundruð þúsund sjúklega reiðar býflugur. Meðan þú hleypur grenjandi að missa þvag og öskrar "JESÚS KRISTUR ÉG ER ÞAKINN BÝFLUGUM"  halda þær áfram að elta þig næstu 750 metrana eða svo.

býflugur

Ennþá hræðilegra:
Afrískar býflugur eiga tilveru sinni vísindunum að þakka. Warwick E. Kerr bjó þær til í Brasilíu á fimmta áratugnum með því að æxla saman evrópskum og afrískum býflugum. Hann vildi býflugu sem gæti lifað í frumskógi (guð einn veit af hverju hann vildi það). Jæja, hann fékk býflugur sem safnast hundrað saman, brjálaðar í að merkja sér svæði, mjög árásagjarnar, hafa drepið hátt uppí þúsundir manna OG geta lifað í frumskógi.


Hermaur (Army or Soldier Ant)

hermaur


Frá: Amason, það eru afrigði í Asíu og Afríku líka en þessir eru alræmdari.

Af hverju þarftu að óttast þá?
Núna, verðuru örugglega ekki hissa þegar ég segi þér að þessir maurar eru huges, með fálmara sem eru rúmlega 1 og hálfur cm að lengd! Þeir eru þekktir fyrir að rífa allt sem er lifandi í sundur, stærðin skiptir ekki máli. Þeir eru líka algjörlega blindir sem, af einhverjum völdum, gerir þá miklu hræðilegri.

maurar

Þeir gera ekki endanleg bú eins og aðrar maurategundir heldur stoppa á einum stað rétt á meðan drottningin skýtur út mörg þúsund eggjum. Á meðan hún einbeitir sér að því fara hinir "hermennirnir" út um allan bæ að leita að mat (matur hérna þýðir allt sem hreyfist). Svo klekjast eggin út og þeir leggja í hann aftur.

maurar




Þeir ganga í sínum herfylkingum í gegnum frumskóginn og drepa og tæta í sundur allt sem er of heimskt, hægfara eða sofandi til að drulla sér í burtu. Við erum ekki að tala um hræðilega sársaukar stungur eða eitursprautandi verur hér, nei við erum að tala um eitthvað virkilega ógeðslegt. Við erum að tala um að þetta einfaldlega skríður yfir þig í hundrað þúsunda tali og rífur þig í sig. Ótrúlegt en satt. Þar sem þeir eru blindir sjá þeir ekki baun hve stórt eða lítið fórnarlambið er heldur telja allt sem á vegi sínum verða vera ógn.
Það hafa verið tilfelli um dýr á stærð við hesta sem hafa verið yfirbugaðir og tættir af þessum maurum. Farðu og stattu við hliðina á hesti og hugsaðu um hvað þetta þýðir.

Ennþá hræðilegra:
Hermaurar eru snillingar í lifandi arkitektúr. Þeir nota sína eigin búka til að komast yfir hvaða hindrun sem er. Leggjast ofan á hvorn annan til að búa til vernarveggi gegn veðrinu eða brú til að komast yfir á, sem annars væri ómögulegt fyrir þá að fara yfir.
Það er ekki til nein önnur lifandi vera í heiminum sem gerir þetta. OG þeir eru blindir.

Bot fly (veit ekki hvernig ég get þýtt þetta yfir á íslensku)

botfly

Frá: Flest afbrigði finnast í Mið- og Suður Ameríku, önnur afbrigði hafa fundist um allan heim.

Af hverju þarftu að óttast hana?
ÚÚÚFFF...jæja...okey.
Það eru til nokkur afbrigði Bot flugu og allar fullkomnlega búnar að aðlagaðar að hverri tegund af fórnarlömbum. Þær hafa allar frábærlega aðlaðandi nöfn eins og Hestamaga Bot flugan (Horse stomach Bot fly), Kindanefja Bot flugan (Sheepnose Bot fly) og gettu hvað!  Mann bot flugan (Human Bot fly)
Hestamaga Bot flugan, til dæmis, verpir eggjunum sínum í grasið. Hestarnir borða grasið. Og þar af leiðandi eggin, sem klekjast út í hita munnsins. Þeir éta sig í gegnum tungu hestsins og grafa sig áfram niðrí magan á honum. Þar hittast allir aftur, festa sig og gerast púpur. Þegar þeir eru loksins tilbúnir að verða flugur, sleppa þeir og láta kúka sér út.
Manna Bot flugan verpir sínum eggjum á moskítóflugu, til dæmis. Moskítóflugan finnur manneskju, eggin nuddast yfir á manninn og líkamshitinn hjálpar þeim að klekjast út. Svo bora þeir sér inní helvítis húðina. OG BÚA ÞAR. Undir húðinni! Og éta!!

Ennþá hræðilegra:
Hérna kemur besti parturinn. Lirfurnar geta lifað hvar sem er í líkama mannsins, það fer bara eftir því hvar eggin lenda. Sem þýðir að þú gætir endað með stóran þykkan orm í tárakirtlunum. Í heilanum. -Það hefur gerst áður.

heili




Síðar!
Ragga

PS. þetta tók alveg sjúúúklega langan tíma! Og ég veit að þetta er stolið, ég tók það fram í byrjuninni, þannig að það er algjörlega óþarfi að benda mér á það:)  en endilega kommentið á þetta:D

Jæja:)Ragnheiður Svava Karlsdóttir

Þá er maður komin með svona sniðug bloggar.is blogg. Ég verð að segja það að þetta er miklu betra en blog.central enda er ég hætt með hana takk fyrir:) en jæja ég fer að henda inn einu góðu bloggi bráðum;)

Síðar!
Ragga

Teljari

Auglýsing

Prófíll

Það eru...

Innskráningar kubbur